Föstudagur, 26. febrúar 2010
Nokkrar stærðir úr Excel-inu mínu
Þar sem ég fer á morgun til að greiða utankjörstaða um Icesave lögin, ákvað ég í gær að finna til nokkrar tölur sem setja Icesave skuldina í samhengi við hrunkostnað ríkisins.
Hér er því upptalning á helstu beinu kostnaðarliðum ríkisins vegna hrunsins, ég átta mig á að í einhverjum tilfellum er um fjárfestingu á hlutafé eða ræða og í öðrum um víkjandi lán að ræða. En miðað við reynslu Íslendinga af bankarekstri geri ég ráð fyrir að þessar upphæðir skili sér ekki til baka. Ef það hins vegar gerist, hlýtur það að teljast óvæntur plús. Vissulega vantar eitthvað á listann og er fólki velkomið að benda á það í athugasemdum.
- Fall Seðlabanka Íslands - 345,0 milljarðar
- Hlutur ríkisins í LÍ (81%) - 122,0 milljarðar
- Hlutur ríkisins í Ísl.banka (5%) - 3,3 milljarðar
- Víkjandi lán til Ísl.banka - 25,0 milljarðar
- Redding vegna Sjóvá - 11,6 milljarðar
- Hlutur ríkisins í Arion (13%) - 9,4 milljarðar
- Víkjandi lán til Aríon - 24,0 milljarðar
- Endurreisn BYR - 10,7 milljarðar (óstaðfest)
- Endurreisn SpKEF - 5,0 milljarðar (óstaðfest)
- Endurreisn annarra sparisj. - 5,0 milljarðar (óstaðfest)
- Lán til VBS og Saga Capital - 46,0 milljarðar
- Icesave kostnaður - 320 milljarðar*
- Hallarekstur ríkissjóðs á fjárlögum 2010 - 100 milljarðar.
- Ráðherra bankamála og fjármálaeftirlitið - 581,9 milljarðar (liðir 2-12)
- Stjórn og yfirmenn Landsbankans - 442 milljarðar (liðir 2 og 12)
- Stjórn Seðlabankans - 345 milljarðar (liður 1)
- Núverandi ríkisstjórn - 146 milljarðar (liðir 11 og 13)
|
Ísland á leið í ruslflokk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 14. janúar 2010
Smá leiðrétting
Vissulega er auðvelt að álikta að tweet-ið sem ég skrifaði um ástand hótelsins hafi verið vísun í jarðskjálftann en svo var þó alls ekki. Enda skrifað 3 tímum áður en hörmungarnar dundu yfir. Hins vegar er nauðsynlegt að það komi fram að íbúar hér hafa sýnt einstakt æðruleysi og hafa kennt okkur sem hér ferðumst heilmikið um mikilvægi samkenndar, góðvildar og gæsku í ömurlegum aðstæðum.
Skrifað í Jacmel.
|
Íslendingur óhultur á Haíti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 30. nóvember 2009
20% af veltu
Mér er rétt og skylt að benda á að Grýla og Skyrgámur Leppalúðason færa Hjálparstarfi kirkjunnar 20% af veltu starfseminnar en ekki einvörðungu hagnaði, á þessu tvennu er nokkur munur.
|
Gjafmild Grýla |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. nóvember 2009
Blendin gleði
Fyrir tveimur vikum fengum við póst frá tryggingafyrirtækinu okkar. Sagan hófst á því að skóli dóttur okkar vildi meina að það hefði farist fyrir að gefa henni tvær bólusetningarsprautur á réttum tíma. Við tókum athugasemdinni vel, héldum reyndar að um miskilning væri að ræða, en fórum að sjálfsögðu með stelpuna á læknastofu. Þar fékk hún aðra af sprautunum tveimur, skorturinn á hinni sprautunni var byggður á miskilningi vegna þess að ekkert rafrænt kerfi er til staðar í landinu til að halda utan um upplýsingar um heilsu landsmanna, enda er hræðslan við slíkt kerfi svo mikið að fjölmargir læknar hér í BNA notast helst aðeins við blað og penna.
En hvað um það. Bréfið frá tryggingafyrirtækinu var sent til að tilkynna okkur að þar sem dóttir okkar væri bólusett eftir 9 ára aldur þá félli allur kostnaður þjónustunnar á okkur, kostnaður sem samkvæmt bréfinu væri rétt um $200. Það kom líka fram að þetta væri bara áminning, raunverulegur reikningur kæmi síðar beint frá lækninum og gæti orðið hærri en þetta.
Það er stórkostlegur sigur fyrir Obama að fulltrúadeildin komi í gegn frumvarpi um betrumbætur á heilbrigðiskerfinu. Fögnuðurinn er þó blendin, því til að koma frumvarpinu í gegn þurfi að bæta í það fyrirvara um að ríkisvaldinu væri með öllu óheimilt að greiða fyrir fóstureyðingar, sem þýðir í raun að flest tryggingafélög munu einnig hafna því. Reyndar eru einhver frávik frá þessu banni, og það á eftir að koma í ljós hversu þröngt þau verða túlkuð.
Þetta þýðir að til að koma í gegn frumvarpi sem mun líklegast lengja líf meðal Bandaríkjamanns um 3-5 ár, mun draga úr ungbarnadauða um hugsanlega allt að 3-5 af hverjum 1000 á ári hverju, þá var dregið úr réttindum kvenna til að taka ákvarðanir um líf sitt. Einhverjum kann að finna það lítill fórnarkostnaður, en ég verð að viðurkenna að ég veit það ekki. Ákvörðun 64 þingmanna Demókrata að spyrða þetta tvennt saman er fremur ógeðfelld.
En fyrirsögnin er sönn og rétt. Sigurinn í þessu máli er sigur Obama, þó kvennréttindum hafi verið fórnað í skákinni.
|
Sigur fyrir Obama |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 14. júlí 2009
Muuhahaha...
Það er ekki erfitt að sjá fyrir sér handrit að glæpamynd. Þráðurinn væri eitthvað á þessa leið.
Smáglæpamaður sem sérhæfir sig í peningaþvætti kemst yfir stórt fyrirtæki sem hann notar til að lifa í vellystingum um skeið. Þegar í ljós koma vafasamir gjörningar í bókhaldinu, brýst lögreglan inn á heimili hans og handtekur fyrir framan ungan son og eiginkonu af hefðarættum.
Eftir réttarhöld og ævintýralegt plott, þar sem stjórnmálamenn fara hamförum er smáglæpamaðurinn dæmdur í fangelsi, þar sem hann situr um tíma. Eftir að fangavistinni lýkur halda faðir og sonur úr landi og hefja rekstur í alræmdri glæpaborg í fjarlægu landi og ná á óútskýrðan hátt ráðandi stöðu á markaði þar sem samkeppnisaðilar hverfa einn af öðrum. En það fullnægir þeim ekki. Þeir vilja hefnd, hefnd vegna fangavistarinnar og niðurlægingarinnar fyrir fjölskylduna forðum daga. Það eykur hatrið að einn stjórnmálamannanna sem gekk hvað harðast fram er nú orðin forseti í heimalandinu.
Þá kemur að plotti myndarinnar. Þeir feðgar mynda tengsl við valdamenn í heimalandinu, gefa örlátlega til góðgerðamála og með ótrúlegri útsjónarsemi fá heimild í gegnum vinatengsl, til að taka yfir stærsta banka heimalandsins. Þeir nota næstu árin til að kaupa upp róttæka gagnrýna listamenn, gefa þeim jafnvel hús, kaupa sérfræðinga til að skrifa um sig bækur, þar sem fortíðinni er breytt, kaupa fjölmiðla til að aðstoða sig í þessu skini og þegar einhverjum verður á að rifja upp fortíðina eru haldnar bókabrennur. Hefndarþorsti feðgana virðist horfin og flestir trúa að réttlætið felist í því að fá að endurskrifa söguna og endurheimta stöðuna sem þeir nú hafa.
En svo er víst ekki. Skyndilega og án viðvörunar kemur í ljós að þeir feðgar hafa notað stöðu sína til að steypa heimalandinu í gjaldþrot. Bankinn sem þeir tóku yfir, skuldar þrefalda þjóðarframleiðslu, Óskabarn Þjóðarinnar, eitt elsta hlutafélag landsins er gufað upp og erlendir menn og konur eiga kröfur á þjóðarbúið vegna horfina peninga. Landið er rjúkandi rúst, vart stendur steinn yfir steini.
Ég sé fyrir mér að lokaskotið, sé af föðurnum að stíga upp í svarta einkaþotu sonar síns á Reykjavíkurflugvelli. Síðan er klippt á skot inn í þotuna þar sem þeir feðgar sitja með kampavínsflösku, horfa hvor á annan og faðirinn segir stundarhátt, Muuhahaha...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 9. júlí 2009
Lánaniðurfelling
Grunnskólakennarinn minn Guðrún Olga Clausen hefur bent á að það skorti eyðublað til að fara fram á lánaniðurfellingu hjá bönkunum. Vegna þess að það á alltaf að hlusta á kennarana sína hef ég útbúið drög að slíku bréfi sem fólk getur nýtt sér ef það hefur áhuga.
---
Til lánanefndar .
Í ljósi óvæntra aðstæðna sem sköpuðust m.a. vegna óábyrgrar hegðunar ykkar sem fjármálastofnunar, lélegs eftirlits af hendi núverandi eigenda stofnunarinnar og óviðráðanlegra aðstæðna, sem stofnun ykkar hefði átt að vera kunnugt um að gætu skapast, þá fer ég fram á niðurfellingu á 50% af öllum skuldum mínum hjá stofnun ykkar og auk þess að felldir verði niður vextir og kostnaður vegna lána frá og með 1. október 2008.
Það er ljóst að samband mitt við ykkur, byggðist á trausti til þekkingar ykkar enda gáfuð þið ykkur út fyrir að vera sérfræðingar á sviði fjármála og meint sérfræðiþekking ykkar er ein ástæða þess að ég kaus að eiga í viðskiptum við ykkur.
Þar sem ráðgjafar ykkar leiðbeindu mér í ákvörðunum sem hafa leitt til gífurlegrar skuldaaukningar af minni hálfu, og ykkur hefði átt að vera ljós að gæti átt sér stað, fer ég hér með fram á að þið takið á ykkur hluta þess tjóns sem ég hef orðið fyrir.
Andleg vanlíðan mín vegna vanhæfni ykkar er að sjálfsögðu ekki metin til fjár. Mér er nú ljóst að traust mitt til ykkar var óverðskuldað og ég hefði átt að sjá að hagsmunir mín og þáverandi eigenda fjármálastofnunarinnar fóru ekki saman (breytt). Af þeim sökum er ég tilbúin(n) að bera helming skuldanna sjálfur, en ítreka að ég fer fram á að þið fellið niður hinn helminginn tafarlaust og jafnframt vexti, vaxtagjöld og innheimtukostnað frá og með 1. október 2008.Með vinsemd og ósk um skjót viðbrögð,(Nafn)(Kennitala)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 12. júní 2009
Röng frétt
Þrátt fyrir að TimeWarnerCable hafi reynt nú síðustu mánuði að sannfæra mig og nágranna mína um dauða loftnetssjónvarpsins, þá eru þær andlátsfréttir stórlega ýktar. Sjónvarpsútsendingar munu halda áfram í lofti eins og áður, hins vegar leggjast af hliðrænar útsendingar (analog) og einvörðungu verður boðið upp á stafrænar útsendingar (digital). Til að ná stafrænu útsendingunum dugar hefðbundið loftnet, en hins vegar þurfa eldri sjónvörp að notast við stafrænt mótakarabox sem Bandarísk yfirvöld hafa niðurgreitt fyrir þá sem það vilja.
TimeWarner og fleiri kapalfyrirtæki hafa hamrað á nauðsyn þess að allir fái sér kapalsjónvarp við þessi tímamót, enda sé samasemmerki milli digital og kapals en líkt og fyrirsögn fréttarinnar og innihald eru þær fullyrðingar kolrangar.
|
Loftnetssjónvarpið uppfært |
| Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. | |
Bloggar | Breytt 13.6.2009 kl. 05:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 8. júní 2009
Var að horfa á Ernie Els á 12.
Það var heitt í Dublin, Ohio í dag þegar síðasti hringurinn var spilaður í Memorial meistaramótinu. Þegar ég sá Byrd taka magnaðan örn á 7. holu hélt ég að hann myndi hafa þetta, enda var Tiger Woods nokkuð á eftir.
Ég sat síðan við 12. holu og horfði á Ernie Els, þegar "Tiger Roar" heyrðist frá þeirri 11. og það barst hratt á milli að Tiger hefði náð einhverju ótrúlegu höggi fyrir örn.
Eftir það virtist Tiger vera eini maðurinn í keppninni. Þar sem ég stóð við klúbbhúsið sá ég síðan Byrd klúðra 18 holunni illa og Ernie Els sömuleiðis meðan Tiger tók 18. holuna á þremur höggum og náði enn einum fugli dagsins.
Ég fann svolítið til með Michael Letzig í dag, spilafélaga Tigers. Það er sjálfsagt ekki auðvelt að spila þegar áhorfendur byrja að labba í burtu þegar þú átt eftir högg en spilafélagi þinn hefur lokið leik. Enda var þetta versti dagur Letzig í mótinu.
En hvað um það, góður dagur í Dublin, í 31 stigs hita og glampandi sól.
|
Tiger sigraði á Memorial meistaramótinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. júní 2009
Sorg
Þar sem ég ók eftir Broad Street nú í kvöld á leiðinni heim úr bíó með 10 ára dóttur minni, tók ég eftir að búið var að leggja tveimur sendibifreiðum fyrir utan eitt einbýlishúsið við götuna. Á bifreiðunum var áróður gegn fóstureyðingum og fremur óhugnanlegar myndir af fóstrum. Auk þess hafði verið hengd á bílana karton með orðum eins og "murderer". Það rifjaðist upp fyrir mér að fyrir fáeinum vikum hafði bæjarstjórnin hér í Bexley rætt að beiðni íbúa á Broad Street hvort bann við áróðri "anti-choice" hreyfinga við íbúðarhús í Broad Street væri brot á tjáningarfrelsi. Þannig er að íbúi við götuna er kvensjúkdómalæknir og starfar á heilsugæslustöð þar sem fóstureyðingar fara fram. Niðurstaðan var sú að áróður framan við húsið væri leyfilegur og viðkomandi læknir, fjölskylda hans og nágrannar yrðu að gera sér myndirnar á bílunum og upphrópanirnar að góðu.
Ég hafði ekki séð bílunum lagt þarna fyrr en í kvöld, og mér var mjög brugðið. Ekki vegna þess að myndirnar væru óhugnanlegar (enda séð svona myndir oft áður), heldur vegna þess að ákvörðunin um mótmælastöðu við heimili læknis núna í kvöld felur í sér alvarlegri hótun en flest önnur kvöld.
Í morgun var nefnilega Dr. Tiller í messuhópi dagsins í Reformation Lutheran Church í Wichita í Kansas. Hann var að bjóða fólk velkomið í kirkju þegar hann var myrtur í andyrinu. Umræða um morðið hefur verið nokkur hjá félögum mínum á FaceBook í dag. Presturinn í Reformation Lutheran útskrifaðist héðan úr Trinity Lutheran í Bexley fyrir fáeinum árum og því er nálægðin e.t.v. meiri en ella.
Það er auðvelt að halda því fram að ekki allir "anti-choice" stuðningsmenn fremji morð, það sé réttur fólks að mótmæla og fólk verði að sætta sig við ónæðið sem fylgir því að vera nágranni kvensjúkdómalækna.
En ég veit það ekki... Í kvöld er alla vega við hæfi að láta kyrrt liggja.
|
Umdeildur læknir skotinn til bana |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 24. apríl 2009
Ég kaus Guðfríði Lilju
Í vefheimum hef ég á stundum verið sakaður um hægrimennsku og jafnvel verið af sumum verið talinn kristin öfgahægrimaður. Mér þykir því rétt að taka fram að í kosningum til Alþingis 2009, kaus ég Vinstri græn og þar með Guðfríði Lilju í Suðvesturkjördæmi.
Ég er stoltur og ánægður með þessa ákvörðun mína og viðtalið við Kolbrúnu Halldórsdóttur í gær, eða orð Steingríms um raunverulega stöðu Flugleiða hafa ekki haft nein áhrif á það stolt mitt, heldur þvert á móti. Stjórnmálamenn sem segja sannleikann, segja hug sinn þrátt fyrir að það sé "ekki hentugt" er það sem við þurfum núna. Þegar Katrín Jakobsdóttir svaraði kröfum um sumarlán með orðunum að það þyrfti að reikna það út og hún lofaði engu, eða þegar sama Katrín sagðist eiga von á skattahækkunum og launalækkunum, þá sýndi hún og sannaði hvernig stjórnmálamenn eiga að tala.
Glæpamenn og mútuþegar, sem telja að hagsmunir almennings séu minna virði en góð veiðiferð, eða það sé í lagi að þingmenn þiggi greiðslur frá fyrirtækjum fyrir að lána nafnið sitt á pappíra, eru ekki fólk sem þarf til að stjórna landinu.
Einstaklingar sem neita að gefa upp hagsmunatengsl sín, nema aðrir geri slíkt hið sama minna mig á stráka í Vatnaskógi, sem byrja vörn sína á orðunum "hann byrjaði" og bæta síðan við "ÞAÐ GERA ÞETTA ALLIR". Slík viðbrögð eru ekki sæmandi einhverjum sem sækjast í leiðtogastöður, heldur eru viðbrögð aumingja og tuskudúkkna.
Það má vel vera að fjárhagur landsins versni, það má vel vera að við einangrumst enn frekar. En kjarkur til að standa upp fyrir skoðanir sínar er það dýrmætasta sem nokkur getur átt. Það er þess vegna sem ég kýs vinstri græn að þessu sinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
